Göng og brú ohf. hefur ráðið Guðmund Daða Rúnarsson í starf forstjóra félagsins.
Göng og brú ohf. hefur ráðið Guðmund Daða Rúnarsson sem forstjóra félagsins. Ákvörðun um ráðninguna var tekin af stjórn félagsins að undangengnu opnu ráðningarferli.
Guðmundur Daði tekur við stjórn félagsins á þeim tímamótum þar sem byggja þarf upp getu félagsins til að taka að sér uppbyggingu innviða sem munu auka öryggi og bæta samgöngur um land allt.
Guðmundur Daði býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun, stefnumótun og framkvæmd umfangsmikilla innviðaverkefna. Hann kemur til félagsins frá Isavia þar sem hann starfaði sem framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli. Guðmundur Daði sinnti fjölbreyttum stjórnunarstörfum hjá Isavia og leiddi uppbyggingu og framkvæmdir flugvallarins samfleytt frá 2016. Guðmundur Daði er verkfræðingur að mennt frá danska tækniháskólanum í Kaupmannahöfn.
„Ég er þakklátur fyrir traustið og hlakka til að leiða innviðafélagið Göng og brú. Mér líst vel á upplegg ríkisstjórnarinnar um að flýta uppbyggingu á stærri samgönguinnviðum með þessum hætti. Þá tel ég að reynsla mín frá Isavia af því að leiða uppbyggingu innviða og ljúka framkvæmdum á réttum tíma, og á kostnaðaráætlun, muni nýtast vel á þessum nýja vettvangi,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson nýráðinn forstjóri Ganga og brúar.
„Við hefjum leika strax í næstu viku með kynningar- og markaðsdegi Ganga og brúar þar sem verða fulltrúar fjölda erlendra og innlendra aðila. Ég veit að það er mikill áhugi á verkefnum félagsins og við förum hratt af stað.“
