Bridge

Göng og brú

Kynningar- og markaðsdagur verður haldinn í Hörpu þann 17. september klukkan 13:30. Skráning mun opna þann 10. ágúst.

Um okkur

Göng&brú er sjálfstætt rekstrar-, fjármögnunar- og eignarhaldsfélag í eigu íslenska ríkisins. Félagið hefur það hlutverk að undirbúa, hanna, fjármagna og annast framkvæmd stærri samgöngumannvirkja sem styðja við öruggar, skilvirkar og nútímalegar samgöngur á Íslandi.

Það er innheimtuaðili veggjalda og þjónustugjalda í vegakerfinu og byggir starfsemi sína á sjálfbærri fjármögnun, þar sem félagið fjármagnar sig á almennum markaði án ríkisábyrgðar á lánum eða almennra rekstrarstyrkja.

Með sérhæfðri þekkingu á undirbúningi, fjármögnun og framkvæmd samgönguverkefna vinnur Göng&brú að því að skapa traustan grundvöll fyrir uppbyggingu mikilvægra innviða til framtíðar.

Tunnel

Drifkraftur breytinga

Frá kyrrstöðu til framkvæmda

01

Af hverju

Að rjúfa kyrrstöðu og skapa raunverulegt hreyfiafl í uppbyggingu stærri samgönguinnviða á Íslandi.

02

Hvernig

Með langtímafjármögnun utan fjárlaga og heildstæðri nálgun sem tryggir samfellu frá stefnumótun til framkvæmdar.

03

Hvað

Sjálfstætt Innviðafélag sem skipuleggur, fjármagnar og hrindir í framkvæmd stórum arðbærum samgönguverkefnum – hraðar og með meiri fyrirsjáanleika.

Kynningar- og markaðsdagur

Kynningar- og markaðsdagur verður haldinn í Hörpu þann 17. september klukkan 13:30.

Skráning mun opna þann 10. ágúst.

Event

Hafa samband